folk ad labba i att ad spitalanum

Fimm þátttakendur í forvali um yfirferð séruppdrátta nýs Landspítala við Hringbraut

Opnaðar hafa verið umsóknir í forvali Hringbrautarverkefnisins, nr. 20997 hjá Ríkiskaupum, vegna þátttökuréttar á yfirferð séruppdrátta vegna útgáfu byggingarleyfis fyrir meðferðarkjarna sem verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut.

Þátttökubeiðnir bárust frá eftirtöldum aðilum:

EFLA verkfræðistofa

Ferill verkfræðistofa

Frumherji skoðunarstofa

Hnit verkfræðistofa

Verkís verkfræðistofa.

Engin takmörkun var á fjölda bjóðenda.

Forvalsnefnd mun birta niðurstöðu sína fyrir 27. desember nk., en gildistími umsókna er sex mánuðir.

Umfang sérteikninga í meðferðarkjarnanum er samkvæmt áætlun um 4.700 en forvalið var unnið í samvinnu við byggingarfulltrúann í Reykjavík, en skoðunaraðili skal kanna hvort séruppdrættir sem lagðir verða fram af hönnuðum séu í samræmi við lög um mannvirki og byggingarreglugerð sbr. skoðunarlista og verklag sem tilgreint er í stoðritum Mannvirkjastofnunnar.