mynd af athofnaborgini

Fundur um athafnaborgina Reykjavík

Fundur um athafnaborgina Reykjavík var haldinn í Ráðhúsi Reykjavíkur í dag.

Þar var sagt frá uppbyggingarverkefnum sem eru að taka á sig mynd í Reykjavík og fjallað meðal annars um hönnun nýs sjúkrahúss í Hringbrautarverkefninu.

Ögmundur Skarphéðinsson frá Corpus hópnum kynnti þar hönnun nýs meðferðarkjarna.

Upptaka af fundinum er að finna hér.

Eftirtaldir fyrirlesarar voru með erindi á fundinum:

  • Þórdís Lóa Þórhallsdóttir, formaður borgarráðs: Hvað getur borgin gert fyrir atvinnulífið?
  • Dagur B. Eggertsson, borgarstjóri: Uppbygging atvinnuhúsnæðis í Reykjavík – staða og horfur
  • Halldóra Vífilsdóttir, arkitekt: Landsbankinn – fjölbreytt atvinnu- og verslunarhúsnæði í miðborginni
  • Árni Geir Magnússon, framkvæmdastjóri Grósku: Gróska - hugmyndahús í Vatnsmýri
  • Ögmundur Skarphéðinsson, arkitekt: Landspítali Háskólasjúkrahús – nýr meðferðarkjarni
  • Ragna M. Guðmundsdóttir, stofnandi Mstudio - Innovationlab: Hönnunardrifin nýsköpun – lykill að samkeppnisforskoti framtíðarinnar
  • Árni Sverrir Hafsteinsson, forstöðumaður Rannsóknarseturs Verslunarinnar: Verslun í Reykjavík – greining á stöðu og framtíðarþróun