
Fyrsta plötusteypa í nýjum bílakjallara undir Sóleyjartorgi steypt
ÞG-Verk vinnur nú að uppsteypu bílakjallarans og hefur verkið gengið vel.
Í dag 27.09 var fyrsti hluti botnplötu kjallarans steyptur.
Um 400 m3 af steypu var dælt í þennan plötuhluta og því um ansi stóran dag að ræða í þessu spennandi verki að sögn Ásbjörns Jónssonar sviðsstjóra framkvæmdasviðs NLSH.
