
Hafið við að klæða síðasta hluta meðferðarkjarnans
Eins og vegfarendur um Hringbraut hafa án efa veitt eftirtekt hefur klæðning á meðferðarkjarnanum gjörbreytt svipmóti byggingarinnar. Núna er svo komið að á austasta hluta byggingarinnar, sem kallast stöng 5, eru útveggjaeiningarnar í uppsetningu en verkinu er nánast lokið á vestari hlutanum.
Á myndinni hér að ofan sést hvar sérfræðingar verktakans hafa komið fyrir útveggjaeiningum á næst neðstu hæðinni og festingar komnar á allan austurgaflinn. Það fer því að líða að því að yfirbragð byggingarinnar verði nánast fullmótað.
Með frétt er nýlegt myndskeið af meðferðarkjarna.