mynd af skylti með upplysingum um hvernig maður kemst a staði

Hefjast þarf handa án tafar

Hefja þarf byggingu sameinaðs háskólasjúkrahúss án tafar, að mati Egilberts Sigurðssonar, yfirlæknis geðsviðs LSH og ritstjóra Læknablaðsins. Í nýjasta hefti Læknablaðsins ritar Engilbert leiðara sem ber yfirskriftina „Hætta á neyðarástandi á Landspítala“ en þar fjallar hann um þær ógnir sem steðja að starfsemi spítalans, einkum húsnæðisvanda, mannauðsvanda og úreldan tækjabúnað.

Hann segir marga eiga erfitt með að átta sig á hve ófullnægjandi húsnæði og starfsumhverfi Landspítala sé orðið.

„Árin 2007 til 2009 sat undirritaður í húsnæðisnefnd Landspítala. Það var lærdómsríkt en lýjandi. Nefndin gekk um nær allar byggingar spítalans til að forgangsraða því litla fjármagni sem bauðst til viðhalds ár hvert. Þær skipta tugum og eru dreifðar um borgina. Leki og rakavandamál eru útbreiddur vandi vegna ónógs viðhalds. Stórar álmur eins og A-álma Landspítala í Fossvogi halda ekki vatni. Það eykur smithættu.

Í A-álmunni er smitsjúkdómadeildin sem er, líkt og aðrir deildir spítalans, með allt of fá einbýli. Flestir eru á tvíbýli og daglegt brauð að sjúklingar liggi á gangi. Það torveldar mjög varnir gegn smitandi veirum og bakteríum. Flestir verða að deila klósetti með öðrum, sem eykur líkur á smiti með tilheyrandi niðurgangsfaröldrum og tímabundnum lokunum deilda.“

Þá segir ennfremur í leiðaranum:
„Rannsóknarstofur spítalans hafa verið reknar í lekum húskofum í bráðabirgðahúsnæði í rúm 36 ár. Sumar þeirra eru raunar í míglekum húsum eins og sú sem greinir berklabakteríur og aðrar hættulegar og smitandi bakteríu- og veirusýkingar í Ármúla. Í geðdeildarbyggingunni við Hringbraut er leki einnig langtímavandi þótt húsið sé aðeins 35 ára gamalt. Enginn með réttu ráði léti hús sitt grotna niður með þeim hætti sem Landspítali hefur mátt sætta sig við á síðasta áratug.“

Engilbert gerir myglusvepp í gamla spítala þar sem m.a. gjörgæslan er til húsa, að umtalsefni.
„Nú hefur komið í ljós að myglusveppir hafa komið sér vel fyrir vegna leka á þriðju hæð gamla spítalans við Hringbraut. Ýmislegt bendir til þess að myglan skýri langvinn og alvarleg einkenni sem starfsmenn með aðsetur á hæðinni hafa fundið fyrir í efri loftvegum. Heilsutjónið virðist mest hjá þeim sem hafa varið þar mestum tíma og hafa til dæmis þurft að sofa þar á vöktum. Sumir þeirra munu líklega þurfa ævilanga bólgumeðferð við loftvegasjúkdómi að sögn lækna sem hafa meðhöndlað þá. Vatn leitar gjarna niður á við. Gjörgæslan er í sömu álmu á næstu hæð fyrir neðan. Það kostar mikið fjármagn að verja hana og þétta og þurrka þykka veggi í þessari gömlu byggingu, reynist það gerlegt. Starfsfólk Landspítala hefur sýnt fádæma langlundargeð í þrengingum síðasta áratugar. Heilsuspillandi starfsumhverfi kann að verða kornið sem fyllir mælinn hjá sumum.“


Nýir bráðabirgðaskúrar á lóðinni?
Engilbert segir brýnt að hefjast handa við nýjar byggingar nú þegar en hefur áhyggjur af hvernig hægt verði að brúa bilið á Hringbraut þar til nýjar spítalabyggingar rísa.

„Húsnæðismál sameinaðs háskólasjúkrahúss hafa verið rædd og metin í meira en áratug. Nefnd á vegum Jóns Kristjánssonar, þáverandi heilbrigðisráðherra, skilaði skýrslu um málið í janúar 2002. Niðurstaðan þá og við endurskoðun sérfræðinga hefur ávallt orðið sú að hagkvæmast sé að byggja við Hringbraut. Nú þegar öll leyfi fyrir byggingunni liggja fyrir þarf að hefjast handa án tafar. Á þessari stundu er mikil óvissa um hvernig hægt verður að brúa bilið á Hringbraut þar til nýr spítali rís. Ég spái að bráðabirgðaskúrum muni fjölga á lóðinni á árinu. Eiga þeir eftir að standa í 36 ár eins og bráðabirgðahúsnæði rannsóknarstofa spítalans?“

Leiðari Læknablaðsins