
Jarðvinna við sjúkrahótelið hefst brátt
Í Morgunblaðinu 24.4 er fréttaskýring um framkvæmdir við byggingu sjúkrahótels við nýja Landspítalann. Haft er eftir Kristjáni Þór Júlíussyni heilbrigðisráðherra að gangi áætlanir eftir gætu framkvæmdir við byggingu sjúkrahótels hafist í lok júní.
„Ljóst er að ekki verður hvikað frá þeirri ákvörðun að byggja þjóðarsjúkrahúsið við Hringbraut“ segir heilbrigðisráðherra. Fram kemur í máli Stefáns Veturliðasonar aðal verkefnastjóra sjúkrahótelsins að reiknað sé að vinna mestu jarðvinnuna í sumar þegar minnst er um að vera á spítalanum.
Sjúkrahótelið er fyrsta nýbyggingin af fjórum í nýjum Landspítala og stefnt er að því að henni verði lokið á vormánuðum árið 2017.