
Læknanemar í Háskóla Íslands í heimsókn
Á haustdögum kom glæsilegur hópur læknanema frá Háskóla Íslands í heimsókn sem er árlegur viðburður.
Gunnar Svavarsson, framkvæmdastjóri NLSH, kynnti verkefni Nýs Landspítala og að því loknu var farið í skoðunarferð þar sem Árni Kristjánsson og Ólafur M. Birgisson á framkvæmdasviði sýndu gestunum framkvæmdasvæðið.
Góð stemmning var í hópnum og eflaust eiga mörg þeirra eflaust eftir að starfa í nýjum byggingum Landspítala við Hringbraut í framtíðinni.
