
Lyftur fyrir meðferðarkjarna
NLSH óskar eftir tilboðum í lyftur, til fólksflutninga, sjálfvirka AGV vagna- og vöruflutninga.
Í heildina mun NLSH kaupa um 30 lyftur en þetta útboð nær einungis til kaupa á sex þeirra.
Lyfturnar verða til notkunar á meðan á byggingaframkvæmdum meðferðarkjarna og rannsóknarhúss stendur og eftir að byggingarnar hafa verið afhentar til notkunar.
Í verkinu felst eftirfarandi:
- hönnun, framleiðsla, flutningur og uppsetning á lyftunum
- hönnun og uppsetning viðbótar stálvirkis í lyftugöngum þar sem þörf er á til samræmis við kröfur framleiðanda
- hönnun og uppsetning á endanlegri lýsingu, raflögnum og tenglum í lyftugöngum
- uppsetning á hlífðarveggjum innan í lyftum, veggjum, gólf og loft sem verður fjarlægt við lok framkvæmdatíma
- þjónustusamningur fyrir viðhald og rekstur
Tilboð verða opnuð þann 21.mars næstkomandi.
Athuga að mynd með frétt er eingöngu til viðmiðunar.