
Opnun á útboði vegna uppsteypu og fullnaðarfrágangs Grensásdeildar Landspítala
Í dag var opnun á útboði vegna uppsteypu og fullnaðarfrágangs utan- og innanhúss á Grensásdeild Landspítala.
Tilboð bárust frá:
Nafn bjóðanda: heildartilboð án VSK
ÞG Verktakar ehf 2.899.048.731, (102% af kostnaðaráætlun)
Eykt ehf 2.813.145.990, (99% af kostnaðaráætlun)
Ístak hf 2.740.735.571, (97% af kostnaðaráætlun)
Kostnaðaráætlun kaupanda er 2.838.447.519 ,- án vsk.