
Opnun tilboða í fullnaðarhönnun meðferðarkjarna nýs Landspítala
Í dag var fyrri opnun tilboða vegna fullnaðarhönnunar nýs meðferðarkjarna vegna byggingar nýs Landspítala. Meðferðarkjarninn, sem áætlaður er að verði 58.500 m2, verður hluti af nýjum Landspítala við Hringbraut. Meðferðarkjarninn verður ein af fjórum nýbyggingum við Landspítalann og sú stærsta.
Fimm tilboð bárust frá eftirtöldum aðilum:
- Verkís og TBL
- Salus
- Grænaborg
- Corpus 3
- Mannvit hf
Síðari opnun tilboða er áætluð að verði 16.júlí og vonast verður eftir að hægt verði að flýta þeirri opnun.
Nánari upplýsingar eru að finna á vef Ríkiskaupa: http://www.rikiskaup.is/utbod/fundargerdir/fnr/15804