Útboð NLSH

Matsdeild bráðamóttöku LSH í Fossvogi

Nýr Landspítali ohf. (NLSH) óskar eftir tilboði útboðsverkið I6054 – Matsdeild bráðamóttöku LSH í Fossvogi.

Verkið er í formi alverktöku en tilboðs er leitað í hönnun, framleiðslu á húseiningum og reisa nýja matsdeild fyrir bráðamóttöku á lóð Landspítala Íslands í Fossvogi alls um 700 fermetra. Í húsnæðinu verða meðal annars 20 legurými, vaktherbergi, lín og lager, fundarherbergi og tengigangur yfir í núverandi byggingu LSH í Fossvogi. Nánari lýsingu má sjá í meðfylgjandi verklýsingu og teikningum.

Um útboðið gildir ÍST 30:2012 Almennir útboðs- og samningsskilmálar um verkframkvæmdir.

Bjóðendur eru hvattir til að senda inn fyrirspurnir og ábendingar um hvað eina sem hefur áhrif á
tilboðsgerð þeirra. Spurningar og svör verða meðhöndluð í hinu rafræna útboðskerfi.

Sjá nánar á utbodsvefur.is: Matsdeild bráðamóttöku LSH í Fossvogi

Útboðsnúmer: I6054

Opnun tilboða: 07.04.2025 kl 13:15